Atburđarteljari

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Snilldar útilega í Hallgeirsey!!

09. júlí 2007 klukkan 23:37
Maður verður nú að koma með blogg af þessari snilldarhelgi...fórum 6 saman í Hallgeirsey-Árný, Bryndís, Sigrún, Hilmar, Sverrir og Arri og þessi ferð verður sko seint toppuð...ferðin einkenndist af heimskulegum aulabröndurum og kommentumJ bara gaman....Lögðum af stað soldið mikið seint frá Bifröst því hún Nanna litla var að klára verkefni en það stoppaði okkur ekkert í gleðinni, á leiðinni var farið í kennileytaleik og helvítis Keflavík var ekki í góðum málum...tyggjóklessur og læti!

Á Selfossi var svo stoppað að taka bensín og Sverrir er að keyra og Árný situr frammí, Sverrir spyr hvar bensínlokið sé og þá segir Árný: okkar megin!! Haha.....Himmi var svo búinn að ljúga að Arri vinur hans væri Kanadískur og Bryndís ætlar að vera rosa fyndin þegar við erum að taka bensín og segir við Himma: “Við stelpurnar ætlum í keppni um það hver getur verið leiðinlegust við helvítis útlendinginn um helgina” hahahahha....auðvitað skyldi Arri þetta alltsaman og það var mikið hlegið að þessu í ferðinni og Arri fékk þetta líka skemmtilega viðurnefni- Helvítis útlendingurinn.


Við með helvítis útlendingnum

Vorum komin á svæðið að ganga 3 um nóttina og þá var stanslaus gleði framundir morgunn...Stóra stólamálið náði hápunkti þar sem við vorum komin í bobba fyrir að hafa fengið lánaðan stól í tjaldinu við hliðina, úbbosí! Þessi bleiki vinur þinn er með stæla, ég er ekki að fíla þetta! Hahaha.....Brutum alla stóla sem við settumst á, samt sem betur fer bara okkar stóla, + nokkra aðra...en ekki samt þeirra sem áttu stólana úr stóra stólamálin...annars hefðum við legið í því! Hahaha




Hér er Sverrir búinn að skemma einn



Sigrún og Bryndís misnotuðu pilt einn sem var dauður í grasinu en eftir það björguðu þær lífi hans og hann vaknaði hress og kátur...
Við stelpurnar vorum svo ekki lengi að höstla og fundum okkur 2 löggugæja sem okkur leist líka svona vel á...

Sofnuðum einhverntíman um morguninn og sváfum í nokkra tíma og þegar við vorum öll nývöknuð spyr Arri: æiii keypti enginn af okkur óáfengt vatn, ég er að drepast úr þorsta!! Hahahhaa....Eftir að hafa komist á fætur var farið í sund á Hvolsvelli en þetta var ein skemmtilegasta sundferð ever...

  • Brútal körfubolti þar sem Sigrún og Árný unnu Himma, Sverri og Arra klárlega og fóru létt með það...Árný fékk stig fyrir að hitta í spjaldið.
  • 3 manna háhest og næstum því 4 manna
  • Strákarnir voru að skjóta okkur upp í loftið og Bryndís var eins og litlu börnin, aftur, aftur, aftur.....bara eeeiiinu sinni enn Himmi
  • Sundkeppni með kork
  • Blakkeppni

Gullkorn sem komu í sundinu voru freeekar steikt....

  • Það er kona í stelpuklefanum....óóó Himmi
  • Bryndís: Ææææ hvað litli strákurinn er sætur, langar að éta hann... sagt ítrekað svo mamman heyrði örugglega....hehemm, þetta er stelpa!!!
  • Niggah shit
  • Of heit fyrir lífið
  • Stelpur, þið eruð svo heitar að vatnið er farið að sjóða
  • Himmi: Sigrún er on fire....Sigrún: uuu nei, ég get það ekkert þegar ég er ofan í vatninu Himmi
  • Raaaass í strákaklefanum, öskrað freeekar hátt....
Eftir sundið fórum við svo á pizza staðinn á Hvolsvelli þar sem við gúffuðum í okkur pizzu...fengum fyrst eina sem einhverjar stelpur áttu og þegar þær áttu að fá hana til baka sögðust þær ekki vilja því við værum búin að POTA í hana...já einmitt!


Haha...en þetta voru massívt góðar pizzur og nóg keypt af þeim og þar sem við erum greinilega ekki mesta útilegufólkið grilluðum við ekki einusinni pullur heldur átum bara pizzaleyfar nammi og snakk;) Fórum svo beint í Ríkið þar sem strákur sem tók þátt í Strákunum var að vinna og Árný kom með lélegustu setningu ferðarinnar: Bæ strákurinn sem var í strákunum, hehe...og var klárlega sú eina sem hló..okvaaard!!Árný gerði verstu fjárfestingu ever og keypti stól sem eyðilagðist á innan við 5 mín. Keyptum svo ísskáp, sem var reyndar bali, en ekkert smá flottur samt! Fórum svo uppá svæði og kúrðum okkur öll saman í ca. 2 tíma til að vera hress um kvöldið, hrotukeppnina það skiptið vann Arri klárlega þó svo að strákurinn í tjaldinu á móti hafi unnið keppnina í heild.



Sverrir svaf í lobbíinu á palacinu og við hin kúrðum í einni klessu...
Þegar við vorum vöknuð var Sigrún eitthvað að stríða Himma sem kom með líka þetta skemmtilega komment, passaðu þig að ég bíti ekki í HNAPPADRAGIÐ á þér...jáhh, hann var semsagt að meina hnakkadrambið!
Vöknuðum og byrjuðum að drekka nokkra kalda beint úr ísskápnum...gullkornin heyrðust auðvitað reglulega yfir daginn og hérna koma nokkur:
  • Teiknum á pippann...neiiii, ef þú verður svo með einhverri gellu þá verður hún blekuð í píkunni! (Árný) Hahahah
  • Suðurlandsskjálftinn
  • Himmi, hann stækkar ekkert þó þú togir í hann!!
  • Leiðinlegasta kynlífsstellingin
  • Himma verður svo kalt í gallabuxum að typpalingurinn dettur af
  • Hafðu smá húmor fyrir sjálfri þér......OJJ, þetta er það sem er sagt við feita fólkið!!!
  • Himmi, koddu aðeins með hálsinn, ég þarf að hvísla þér soldið
  • Mamma þín er heyrðu

Bryndís var eins og alvöru barþjónn og blandaði sjúklega góðan Cabrinia, enda með alvöru ísskáp og bar og alles í Lobbíinu á Palacinu...
Við misstum af brekkusöngnum en náðum lélegustu hljómsveit landsins sem spilaði um kvöldið...Hilmar kom með fyndnasta komment kvöldsins þegar hann var búinn að detta á dansgólfinu og fór í sjúkratjaldið, einn björgunarsveitamaðurinn spyr hann hvað hann haldi að sé að og þá svarar Himmi ekkert smá aumingjalega, Mænuskaði og haltrar í burtu! Hahahahhahaha.....Kynntumst gaurnum í Papinos auglýsingunni sem enginn hefur séð, hann var FYNDINN, og við kynntumst líka gaurnum sem drapst í 3 tjöldum og hann lofaði að drepast ekki í okkar tjaldi líka...Árný höstlaði einn 12 ára, alveg að verða 13 og endaði með 4 sogbletti á hálsinum, hehemm...ekki töff skilurru!! Gítarstemming dauðans var svo langt fram eftir nóttu....sungum okkur hás! Rassinn á Himma varð fyrir barðinu á 4 kvenskörungum og gæslan kom hlaupandi og hélt að það væri slagur, fara svo bara að hlæja- 4 stelpur að ráðast á þig, best að taka mynd!! Hahaha!Bjórslagur sem endaði í ruglinu, bjór allover, í augunum, hárinu og allt- crazy pípol....giiiirnó!! Á sunnudeginum vöknuðum við um 11 leytið í STEIKJANDI hita og skriðum öll út í Lobbíið til Sverris sem hafði það ansi notó bara sleikjandi sólina á meðan við vorum varla með lífsmarki í steikjandi hitanum í tjaldinu...Pælið í því ef sólin myndi bara brotlenda hérna á túnið hjá okkur, Já Hilmar, einmitt það sem við vorum að pæla í líka!Fórum svo á KFC á Selfossi þar sem Himmi vildi fá sér Tannstöngul (meinti Maísstöngul) og svo var haldið í sund...þar var Árný komin í allt annan pakka og ákvað að elda aðeins upp og var að hösla einn 78 ára sjúklega heitan gaur. Póníhestar voru misnotaðir í gríð og erg..... dúndrandi og dúndrandi og dúndrandi og dúndrandi hjá sumum allan tímann í pottinum! Ojj, það er FLOATER í lauginni....haha!
Eftir langa og góða sundferð var svo haldið heim á leið í sveitina góðu....þessi ferð var FRÁBÆR í ALLA staði og verður seint toppuð!!!
Takk fyrir helgina sykurpúðar...þetta var BEST!!
-Támínur




Vaknađur úr dvalanum !!

03. júlí 2007 klukkan 00:01

Það er orðinn einhver slappleiki í þessu bloggi sýnist mér, við erum samt ekkert slappar, ástæðan er bara sú að það er svo kreisí að gera hjá okkur að við megum ekkert vera að þessu Glottandi Tíminn þýtur áfram eins og vanalega og áður en við vitum af verðum við mættar hérna á 20 ára útskriftarafmæli, nei ok kannski ekki alveg. Á þessum mánuði síðan hún Sigríður Lóa bloggaði síðast er nú margt stórmerkilegt búið að gerast, við erum t.d. búin að borða grillmat að meðaltali þrisvar ef ekki fjórum sinnum í viku enda erum við ekki með kokk og bakara í liðinu að ástæðulausu. Nokkrir bjórar og hvítvín hafa fengið að fljóta sem gerir allt svo miklu skemmtilegra. Svo erum við stelpurnar aldeilis búnar að taka á því í ræktinni síðustu vikurnar, erum í strangri æfingu fyrir Hroka sem verður haldinn á fimmtudaginn (útskýrist síðar) og ætlum okkur að massa keppnina, ætlum samt að vera rólegar á öllum yfirlýsingum hehe
Svo fórum við ásamt fullt af góðu fólki hér frá Bifröst (enda bara snillingar hér í skólanum) í heljarinnar gönguferð upp á Baula, rúmlega 900 m teknir á sprettinum þarna upp, eða kannski ekki alveg en upp var allavega farið. Stórkostlegt veður og ennþá stórkostlegra útsýni. Við erum orðnar fjallaskjúkar eftir þetta og stefnan er tekin á Hafnarfjallið og Esjuna á næstum dögum og svo ætlar Brandurinn að klífa Búlandstind í ágúst, en erum samt enn og aftur rólegar í öllum yfirlýsingumHlæjandi

Um helgina er svo planað að smala sem flestum Bifrestingum saman í útilegu þar sem verður vonandi nóg af sól, gítarspili og pottþétt nóg af bjór og áfengi, enda geta bifrestingar ekki verið þekkt fyrir annað en að kunna að halda almennilegt partý.

Ég treysti svo á Sigrúnu sykurpúðann minn til að koma með nokkrar myndir úr allsherjargleðinni sem ríkt hefur hér í sveitasælunni undanfarinn mánuð, rétt mánuður eftir sem verður án efa fullnýttur í enn meiri gleði, grill og skemmtilegheit.

fyrsta bloggiđ mitt

06. júní 2007 klukkan 17:14
Sælar skutlur og skutli

Ákvað að skirfa eins og eina færslu hér bara svona til að vera með...
Vil byrja á að þakka fyrir mjög notalega bústaðarferð um síðustu helgi...
það sem árný gleymdi að nefna var t.d.
...að Árný Nanna fékk sogblett í ferðinni...
...við fórum í skógargöngu við stúlkurnar...löbbuðum sem sagt fram og til baka einhvern veg...voða fjör...hehe
...Andri fór allsber upp úr pottinum og flassaði Árnýju en árný segist ekkert hafa munað eftir því..held að hún sé bara ennþá í sjokki....
....ási og tryggvi gerðust Björgunarsveitarmenn eftir að Andri laumuskreið útá veg á leiðinni að drekkja sér blindfullur...
....og áNRý sýndi okkur gamla búið sitt (fyrir þá sem ekki vita(eins og ég(sigga) vissi t.d. ekki) er að bú er sem sagt þykjustu eldhús eða hús þar sem hægt er að baka drullukökur og hræra "seiði" með spítu, árný nanna sem sagt var í því að brugga seiði þegar hún var lítil..pínu spes eða hvað...) ;)...man ekki hvert ég var komin og nenni þar með ekki að skrifa meira um þessa ferð...

en við erum klárlega að fara allar í bústaðinn í sumar, ef við meigum.....og brugga eins og eitt tvö seiði með ÁRnýu

kv. Sigga Lóa



Sumarbústađarskemmtisteikdrykkkjuskapur og dólgslćti...

05. júní 2007 klukkan 11:13
  • þrjár af bifrastarskvísunum skelltu sér í bústað í Grímsnesinu . það var farið á föstudagseftirmiðdegi eftir að hafa farið í próf og horft á einn fótboltaleik eða þessi fótboltaleikur var nú eiginlega bara hálfgert rúbbí... Tryggvi átti stóran þátt í því..Glottandi

  • Árný, sigrún, sigga, tryggvi ási og andri fengur þann heiður að koma í slottið svönukot.
  • á föstudagskvöldið var haft það kósý nokkrir drykkjuleikir voru háðir en þó fór allt saman siðsamlega fram...
  • laugardagurinn: við við fórum á Selfoss (nei ekki borgarnes árný og sigrún) sigrún, ási og andri áttu að fara í bónus og kaupa einn pakka af kjöti, karteflusalat og sprite, neinei þau komu út með hálfa búðina enda var andri eins og lítill krakki inn í búðinni...heheh
  • síðan var haldið upp í bústað, þar var ási með svaka plan fyrir alla, " sko ég veit hvernig þetta verður, við (ási, andri og tryggvi) förum núna í pottinn á meðan stelpurnar fara í göngutúr eða eikkað og síðan þegar þegar þær koma aftur þá förum við að horfa á leikinn og þær í pottinn" hahahah jamm einmitt ási..
  • um kvöldið var háð þessi gífulega veisla, aldrei hefur sést svo mikill maturinn í kvöldmat hjá fátækum námsmönnum og auðvitað var drykkur hafður við hönd.. allan daginn..
  • ég held að andri hafi átt samræðurnar við matarborðið, þegar hann sagði sömu söguna 3 sinnum, og þess á milli sem hann sagði að sigga héti alveg það sama og mamma sín sem er btw æðisleg. hahahah
  • síðan var farið í partý og co, úff strákarnir svindluðu og unnu okkur stelpurnar, við tókum náttl tapinu eins og alvöru kvenmenn, brostum bara og sögðum að við hefðum leyft þeim að vinna, bara svona upp á egóið.. Brosandi
  • hmm frasar ferðarinnar komu allir frá honum andra kallinum. heheh
  • " Það er best" "totally" "mamma mín er æðislega" "fokkaðu þér, drep þig" úff við skulum segja að andri sé "man of few words"
  • sumir eru ekki með lítið typpi... og aðrir taka nú stundum aðeins og stórt upp í sig...
  • árný nanna er rjómabolla í þömbukeppni..
  • hmm hver var twister meistarinn?
  • já svo má ekki gleyma ANDRI hann stökk fram af brúnni hjá þrastarlundi og ofan í ískalt sogið.. já sumir eru klikkaðari en aðrir.. úff
  • hahah já það má ekki gleyma því að Catherine Zeta Jones var með í för.. heheh sigga fekk það viðunefni...

maraþon í pottamellum, twister, mikil drykkja, mikil steik, sigga, tarzan sagan og andri.. þið munið afganginn..

Plani plan

31. maí 2007 klukkan 17:26
Já, við virðumst vera færsluglaðar svona daginn fyrir próf alltaf;)

En ég ætlaði bara að plana sumóferð eða ferð eitthvað saman í júní...hugmyndin er að fara helgina 15.
júní eða 22. júní? hvað segið um það dömur?

Ég vil fá ákvörðun um þetta sem fyrst svo allir geti tekið helgina frá!

Kveðja, Tigerinn skipulagsglaði:)

Manndómsvígla á Bifröst

17. maí 2007 klukkan 15:32
Próf á morgun og það þýðir bara eitt, ástæða til að blogga hehe
 
Við skvísurnar erum búnar að vera massa ræktina núna undanfarið, Bryndís er nú samt búin að vera slökust (finnst hræðilegt að viðurkenna það) en til að bæta það upp var tekinn allsherjarlíkamsræktardagur á Bifröst í gær.

Hann hófst með sifræðifyrirlestur þar sem heilabúið var sett á fullt, eftir það fórum við í Bodypump til Rósu sem var algjör snilld og við verðum klárlega helköttaðar eftir nokkra tíma í viðbót. Til að klára dæmið hlupum við stelpurnar nokkra kílómetra með Coco í eftirdragi á meðan strákarnir fóru í pottinn. Þegar við vorum svo komnar í pottinn fóru menn að tala um það að taka smá hjólatúr í blíðunni og Brandur var að sjálfsögðu til í það enda nýbúin að fá dömufjallahjólið með litlu sætu körfuna. Við þremenningar lögðum af stað, Brandur, Benni og Robbi.

Við hjóluðum meðfram Hreðavatninu á þriðja hundraðinu eins og enginn væri morgundagurinn, yfir á og allskonar torfærur. Benni var agalega mikill töffari og var alltaf að skransa og prjóna og allskonar sem Brandur þarf greinilega að læra í sumar. Við enduðum í smá dal þar sem vinsælt er að stökkva framan af kletti og ofan í ískalt vatnið. Þar hittum við líka fleiri Bifrestinga sem voru í hjólatúr. Strákarnir voru ekki lengi að henda sér út í vatnið og stökkva fram af, Brandur var aðeins varkárari en mig sárlangaði að stökkva. Júlli ákvað svo að stökkva og Benni í annað skipti þannig að ég gat nú ekki verið minni manneskja og lét mig hafa það að stökkva fram af líka. Skal fúslega viðurkenna það að hjartað hamaðist á trilljón og ég var skíthrædd og ísjökulkalt en þetta var algjörlega þess virði, adrenalínið flæddi á fullu um æðarnar.

Setti inn nokkrar myndir úr fjörinu merkt manndómsvígsla og takið eftir tveimur stórskemmtilegum myndum. Á fyrri myndinni er Júlli með geðveikt flotta pósu á meðan Benni herramaður hjálpar dömunni upp, pósar líka svona skemmtilega í leiðinni og á seinni er ég að kasta mér fram af og Benni þvílíkt stoltur af mér, kannski ekki skrýtið þar sem við vorum búin að standa í dágóðan tíma þarna uppi áður en ég lét vaða hehe

Þetta verður klárlega endurtekið aftur í sumar í blíðunni hér á Bifröst.
 
Suma daga er einfaldlega skemmtilegra að vera til

Myndir

03. maí 2007 klukkan 15:04
Já, kellan var ekkert smá dugleg og þar sem að ég nennti ekki að gera neitt í vinnurétti í gær þá ákvað ég að skella mér í það að setja inn myndir í staðinn:)

við erum nottla svo fokking fallegar að við verðum að leyfa fleirum að njóta þess að horfa á okkur!!

http://sigrun.myphotoalbum.com/

Well...farin að læra undir próf, ekki veitir af!!!

Knús, Sigrún

1.lota af 7

24. apríl 2007 klukkan 10:09

Stelpur

Fyrsta vorlotin komin í gang sem er vinnuréttur með Ástráði Haralds í fararbroddi. Af þessum stuttu kynnum mínum af honum virðist maðurinn vera snillingur og lofar þetta bara góðu. Reyndaaaaaaaaar er  komið smá babb í bátinn, ekki barn í bátinn heldur babb. Hann er nefnilega búinn að leggja fyrir stórt tímaverkefni á föstudaginn og það vita nú allir að það er bara kjánalegt þar sem fimmtudagar eru einu dagarnir sem Bifrestingar fá a djamma.  Þetta þýðir sem sagt að við stelpurnar verðum bara að gjöra svo vel að haga okkur almennilega á fimmtudaginn, Sigrún engin og þá meina ég ENGIN skot !!!!

Svo er komin smá fjársöfnun í gangi og þar sem við erum nú fólk í háskóla þá kunnum við sko réttu leiðirnar til þess að afla fjár og það er dósasöfnun. Hér eftir eiga allir sem þekkja okkur að safna saman dósunum sínum og henda svo á pallinn hjá Sigrúnu og verður péningurinn notaður til þess að kaupa...............

TRAMPÓLÍN !!!!!!!!!!

Koma svoooo fólk.....

Ćvintýri Brandsins

16. apríl 2007 klukkan 23:38

Dagur er að kveldi komin eftir 36 tíma vökumaraþon en áður en Brandur lognast út af vegna ofþreytu er ætlunin að leiða ykkur elskurnar inn í ævintýraheim Brandsins síðustu daga. Til að sveipa færsluna ævintýralegum blæ er ákveðið að nefna Brandinn, ÆvintýraBrand.

Eftir alveg hreint stórskemmtilega viku í missó er misserishópur U (sem samanstendur af púra snillum) búinn að hlægja endalaust mikið, éta endalaust mikið af óhollustu en frekar lítið af nammi, sötra oggu bjór annað slagið til að örva sköpunargleðina og skila inn hinni fullkomnu skýrslu Ullandi

Þá lögðu aðal massadjöflarnir úr hópnum (Benni, Addó og ævintýraBrandur) á stað í háskaför á Akranes til að koma dýrgripnum úr prentun upp á Bifröst og var trallað og sungið hástöfum alla leiðina, hlustað á nokkrar  reynslusögur frá Addó um fyllerí á unglingsaldri og baðlaug í Öskjuhlíðinni og ekki fengið sér ís.

Eftir skilin á skýrslunni var ákveðið að taka eina pottaferð og drekka a.m.k. einn öllara og enn og aftur voru þar aðalmassadjöflarnir í missersihópnum á ferð. Hinir kettlingarnir voru heima malandi í rúminu. Þegar líkaminn var kominn á stig að umbreytast í rúsínu eftir tveggja tíma legu í pottinum, fannst ævintýraBrandi og félögum kominn tími til að gera eitthvað af viti og fara á kaffihúsið og fá sér einn öllara til. Sá öllari leystist  svo upp í annan öllara sem leiddi til samloku með grænmeti og frönskum sem leiddi  að lokum til nokkra fleiri öllara.  Tekið skal fram að á þessum tímapunkti gufaði Addó upp að því er okkur Benna virtist en kom þó fljótlega í ljós í rúminu heima hjá  Bríet sofandi með gleraugun á sér og sokkalaus. Uppgufun Addós kom þó ekki að sök þar sem aðra bjórþyrsta Bifrestinga dreif fljótt að og slóust um að fá að sitja til borðs með okkur og deila reynslusögum úr missó. Eftir nokkra tíma setu var kominn smá fílingur í aðra tána og því ferðinni heitið að Einihrauni 2 í leit að   "áðuruppgufuðum" Addó sem fannst fljótt í fyrrgreindu ástandi. Hann var að vanda hress og bauð okkur að taka þátt í gítarkeppni fjölskyldunnar og er skemmst frá því að segja að bæði Addó og Benni rústuðu ævintýraBrandi. ÆvintýraBrandur dó þó ekki ráðalaus og réðst í það að kenna Benna indverskan dans og nokkur eurovision spor við miklar undirtektir nærstadda og er greinilegt að þetta verður tekið á næsta Bifró ásamt hinu geysivinsæla atriði "fokkaðu mér upp". Eftir að ævintýraBrandur var búinn að gera sig að fífli í smátími hélt hópurinn í víking heim til Sigrúnar, aka Tigerinn, til að standa við loforð sitt um búslóðaflutninga. Öllu heimilinu var vippað í einum grænum hvelli, eða in a green bang eins og þeir segja í Ameríkunni, upp á kerru tengda við fjórhjól sem ÆvintýraBrandur stýrði af mikilli festu í gegnum umferðarþvöguna (eða nei reyndar ekki þar sem ÆvintýraBrandur var orðin frekar þreytt þegar þarna kom við sögu og hjálpaði ekkert til af neinu viti við flutningana heldur brosti bara, var sæt og röflaði ýmist á íslensku eða ensku).
Einsi bifrastarpabbi klikkaði svo ekki á sínu frekar en fyrri daginn og bauð liðinu upp á bjór sem hressti alla við og þá sérstaklega ÆvintýraBrand sem var að því kominn að sofna. Um þetta leyti var svo komið að ÆvintýraBrandi að gufa upp en hún skilaði sér þó nokkurn vegin heilum og höldnu heim í kringum miðnætti, rétt áður en vagninn breyttist í grasker.

Myndir frá Shanghai...

06. apríl 2007 klukkan 05:12

Ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá Shanghai á bloggið mitt....

Kv.
Silja :*